Vatnsæð er farin í sundur á Hringbraut rétt austan við Hofsvallagötu og því von á miklum umferðartöfum um austurleiðina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þar segir jafnframt að tilkynning þessa efnis hafi borist 16:50.
Lögregla er á vettvangi og aðstoð frá Orkuveitu og Vegagerð mun á leiðinni.
Búist er við að vegurinn verði lokaður í nokkurn tíma. Myndir af vettvangi má sjá hér að ofan.