„Þetta gerðist þannig að vörubíll sem var að flytja efni í flugbrautina ók inn á akstursbraut flugvéla í veg fyrir flugvél,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia.
Það óhapp átti sér stað á Keflavíkurflugvelli nýlega að þota þurfti að hemla þegar vörubíll keyrði í veg fyrir hana á akstursbraut, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Verið er að endurnýja norður-suður flugbrautina á vellinum og vörubíl sem var að flytja efni í brautina var ekið inn á akstursbraut sem flugvélar nota til að aka frá flugbraut og yfir að flugstöð. Ökumaður vörubílsins virðist ekki hafa gert flugturni vart við sig og flugmenn vélar sem var að koma eftir akbrautinni vissu því ekki af honum og þurftu að hemla snögglega til að lenda ekki í árekstri.