Björgunarmenn á vettvangi í Sveinsgili hafa nú náð að staðsetja manninn sem leitað hefur verið að í ánni undir skaflinum. Unnið er að því að ná honum upp. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar á Suðurlandi. Þar segir að aðrir björgunarsveitarmenn séu að ganga frá á vettvangi, bæði við ána og í Landmannalaugum þar sem vettvangsstjórnstöð hefur verið starfrækt.
Á vef lögreglunnar segir að frekari upplýsingar af málinu verði ekki veittar að sinni en lögreglan vill þakka þeim fjölmörgu viðbragðsaðilum sem að leitinni komu fyrir metnaðarfullt og óeigingjarnt starf.