Þrír snarpir jarðskjálftar urðu í Mýrdalsjökli undir miðnætti í gær og mældist sá stærsti þeirra 3,6 á Richter.
Skjálftarnir urðu í sunnanverðri Kötluöskju og voru allir um eða yfir þrír að stærð. Hrina minni skjálfta fylgdi síðan í kjölfarið. Jarðskjálftahrinan stóð frá ellefu í gærkvöldi til hálfeitt í nótt og segir Hulda Rós Helgadóttir, sérfræðingur á náttúruvá Veðurstofu Íslands, jökulinn hafa verið nokkuð rólegan síðan.
„Við fylgjumst þó vel með Mýrdalsjökli þessa dagana, því hann virðist vera vel vakandi í júlí,“ segir Hulda Rós.
Lítið hlaup varð í byrjun mánaðarins í kötlum Entujökuls, sem gengur út úr Mýrdalsjöklinum og niður í Markarfljótið. „Það virðist hins vegar vera í rénun miðað við rafleiðni og vatnshæð, en við vöktum áfram vel árnar sem renna undan Mýrdalsjökli og fylgjumst alltaf vel með Múlakvísl, Skálm og Markarfljóti,“ segir Hulda Rós.