Íslendingar voru í eldlínunni á heimsleikunum í Crossfit, sem fara fram þessa dagana í Los Angeles í Bandaríkjunum, í gær.
Í meðfylgjandi myndasyrpu má líta á fjölmargar myndir sem teknar voru af Íslendingunum í gær. Eftir keppni föstudagsins er Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir í öðru sæti í einstaklingsflokki kvenna og Katrín Tanja Davíðsdóttir í því fjórða.
Alls etja þrettán Íslendingar kappi á heimsleikunum. Tveir þeirra, Haraldur Holgersson og Hilmar Þór Harðarson, hafa þegar lokið keppni. Haraldur keppti fyrstur Íslendinga í unglingaflokki á leikunum en Hilmar Þór keppti í mastersflokki karla á aldrinum 55 til 59 ára.
Í einstaklingskeppni kvenna eru íslenskir fulltrúar fjórir talsins. Þær Katrín Tanja Davíðsdóttir, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Annie Mist Þórisdóttir og Þuríður Erla Helgadóttir eru meðal þeirra sem munu keppast um titilinn hraustasta kona heims.
Í karlaflokki er það Björgvin Karl Guðmundsson sem freistar þess að verða hraustasti maður heims.
Þá tekur lið CrossFit XY einnig þátt, en liðið skipa þau Árni Björn Kristjánsson, Hilmar Arnarson, Hjördís Óskarsdóttir, Sigurður Þrastarson, Sólveig Sigurðardóttir og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir. Varamenn eru þau Ingimar Jónsson og Sandra Helgadóttir.
Keppnin stendur formlega yfir 19.–24. júlí í StubHub-Center í Carson í Kaliforníu.