Viktoría hætt hjá Fréttablaðinu

Viktoría Hermannsdóttir, annar ritstjóri helgarblaðs Fréttablaðsins, sagði upp störfum í dag. Þetta staðfestir Viktoría í samtali við mbl.is. Hún vildi að öðru leyti ekki tjá sig um uppsögnina. Viktoría hefur einnig séð um föstudagsviðtöl blaðsins og hefur áður verið tilnefnd til blaðamannaverðlaunanna.

Viktoría Hermannsdóttir.
Viktoría Hermannsdóttir.

Fyrr í vikunni sagði Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, upp störfum hjá 365 en hún hafði gegnt stöðunni í tæpt ár.

Fyrr sama dag mótmæltu starfsmenn Fréttablaðsins og Vísis harðlega „óverðskuldaðri uppsögn“ yfirmanns ljósmyndadeildar 365, Pjeturs Sigurðssonar, með tilkynningu sem samþykkt var á fundi starfsmanna í gær. 

Sjá frétt mbl.is: Mótmæla harðlega uppsögn Pjeturs

Sjá frétt mbl.is: Átök innan 365 í kjölfar brottrekstrar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert