Malbikunarframkvæmdir verða við Sæbraut til vesturs í dag. Vinnusvæðið byrjar vestan við gatnamót við Sundagarða og nær vestur fyrir gatnamót Klettagarða. Ein akrein verður lokuð í einu og verður umferð hleypt fram hjá, en gatnamótin við Klettagarða verða lokuð um tíma.
Vakin er athygli á að vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki verða við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Vegfarendur eru því beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Malbikunarframkvæmdir hefjast núna klukkna níu og gert er ráð fyrir að þeim verði lokið um sexleytið í kvöld.