Lögreglan á Suðurnesjum hafði í vikunni afskipti af tveimur ungum mönnum sem báðir reyndust með fíkniefni í vörslu sinni. Annar þeirra var með kannabisefni og fjaðurhníf og gerðist því jafnframt brotlegur gegn vopnalögum. Hinn framvísaði kannabisefnum í þremur litlum pokum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
„Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.“