Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, mun leiða lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi. Þetta er fullyrt í DV í dag. Þorgerður Katrín hefur til þessa ekki viljað svarað með afgerandi hætti spurningum fjölmiðla um það hvort hún hyggi á framboð fyrir Viðreisn, þó að orðrómur um það hafi verið afar hávær um langt skeið.
Þegar mbl.is ræddi við Þorgerði Katrínu í gær kvaðst hún enn ekki vera búin að ákveða hvort hún færi í framboð.
Leiði Þorgerður Katrín lista Viðreisnar í Kraganum, þá mun hún fara fram í sama kjördæmi og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Þorgerður Katrín hefur sl. þrjú ár starfað hjá Samtökum atvinnulífsins (SA). Þorsteinn Víglundsson, sem var framkvæmdastjóri SA á þeim tíma, hefur einnig tilkynnt framboð fyrir Viðreisn og ætlar að leiða lista flokksins í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.