Stjórnarráðið er að leita lausna á þeim vandamálum sem upp koma ef lagning háspennulína frá Þeistareykjavirkjun og að iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík verður bönnuð eða tefst mikið.
Málið er á verksviði fleiri en eins ráðherra og hefur Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra haft forystu um vinnuna, að því er fram kemur í umfjöllun um lagasetningaráformin í Morgunblaðinu í dag.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er með til umfjöllunar kæru Landverndar vegna útgáfu framkvæmdaleyfa sveitarfélaga fyrir lagningu háspennulína Landsnets á milli Þeistareykjavirkjunar og Bakka og tengingu við landskerfið. Framkvæmdir voru hafnar en úrskurðarnefndin stöðvaði þær að kröfu Landverndar á meðan fjallað er um málið.