Fjárveiting til að breikka eða skipta út einbreiðum brúm verður aukin um milljarð frá upphaflegu frumvarpi að samgönguáætlun, samkvæmt tillögum stjórnarflokkanna. RÚV hefur eftir innanríkisráðherra að fjármagn verði aukið töluvert í vegakerfið í heild, en stjórnvöld viti þó að gera verði betur
39 einbreiðar brýr eru á hringveginum í dag en fimm þeirra hverfa á næstu fjórum árum. Fram kom í fréttum í gær að ef fyrirhuguð fjárveiting í að breikka þær stæði í stað tæki það tæp 50 ár.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir þetta standa til bóta. „Núna erum við að setja milljarð í að fækka einbreiðum brúm, erum að bæta verulega í. Síðan sjáum við fram á eina stóra framkvæmd við Hornafjörð, við þekkjum að það eru stórar einbreiðar brýr þar, sem verður til þess að við losnum við nokkrar slíkar í leiðinni. En auðvitað vitum við það að tíminn sem það tekur að gera vegakerfið á þann hátt sem við viljum hafa það er því miður langur.“