Oddný leiðir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi

Oddný Harðardóttir, þingmaður og formaður Samfylkingarinnar,leiðir lista flokksins í Suðurkjördæmi.
Oddný Harðardóttir, þingmaður og formaður Samfylkingarinnar,leiðir lista flokksins í Suðurkjördæmi.

Listi Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar var birtur í kvöld. Efsta sæti listans skipar Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður og formaður flokksins.

Annað sætið skipar Ólafur Þór Ólafsson, stjórnsýslufræðingur og forseti bæjarstjórnar Sandgerði. Arna Ír Gunnarsdóttir, félagsráðgjafi og bæjarfulltrúi á Selfossi, er í þriðja sæti og Magnús Sigurjón Guðmundsson aðgerðastjóri skipar það fjórða.

Þá eru Guðný Birna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, Miralem Hazeta húsvörður og Arna Huld Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur í fimmta, sjötta og sjöunda sæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert