Vilja Bergsson mathús úr húsi

Deilur standa yfir á milli Þórsgarðs fasteignafélags og Bergsson mathúss …
Deilur standa yfir á milli Þórsgarðs fasteignafélags og Bergsson mathúss um leigusamning sem gerður var á milli félaganna. Þórir

Deilur standa yfir á milli Bergsson mathúss ehf. við Templarasund í Reykjavík og fasteignafélagsins Þórsgarðs ehf. sem á fasteignina sem Bergsson notar undir veitingarekstur.

Forsaga málsins er sú að Þórsgarður sagði einhliða upp leigusamningi við Bergsson mathús snemma síðasta vor. Við þessa niðurstöðu sætti Bergsson sig ekki. Í framhaldinu höfðaði Þórsgarður mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem þess er krafist að Bergsson víki úr húsnæðinu, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Að sögn Þóris Bergssonar, eiganda Bergsson, telur fyrirtækið sig vera með lögbundinn leigusamning í höndunum sem gerður hafi verið til 12 ára og enn séu átta ár eftir af þeim samningi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert