Í dag hefst aðalmeðferð í svokölluðu Aurum-máli í annað skiptið. Áður hafði málið farið í gegnum héraðsdóm sem endaði með sýknu ákærðu. Seinna ógilti Hæstiréttur niðurstöðuna vegna ummæla meðdómanda í málinu sem bentu til óvildar hans í garð embættis sérstaks saksóknara, en meðdómarinn var bróðir Ólafs Ólafssonar fjárfestis, sem áður hafði verið ákærður af embætti sérstaks saksóknara í Al-thani málinu og dæmdur til fangelsisvistar. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferðin núna taki 7-8 daga.
Málið er höfðað gegn Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Magnúsi Arnari Ásgrímssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, sem var einn aðaleigenda bankans, og Bjarna Jóhannessyni, fyrrverandi viðskiptastjóra Glitnis banka.
Samkvæmt ákærunni er Jón Ásgeir ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum Lárusar og Magnúsar Arnars en til vara fyrir hylmingu og til þrautavara fyrir peningaþvætti og fyrir að hafa á árinu 2008 í krafti áhrifa sinna í Glitni beitt Lárus og Bjarna fortölum og þrýstingi og hvatt til þess, persónulega og með liðsinni Jóns Sigurðssonar, varaformanns stjórnar Glitnis Banka hf., og Gunnars Sigurðssonar, forstjóra Baugs Group, að Lárus og Magnús Arnar samþykktu að veita félaginu FS38 ehf. 6 milljarða króna lán frá Glitni, honum sjálfum og Fons til hagsbóta.
Þetta er eina hrunmálið sem Jón Ásgeir og Bjarni hafa verið ákærðir í, en Lárus Welding var áður ákærður í Stím-málinu og markaðsmisnotkunarmáli Glitnis auk Vafningsmálsins þar sem hann var sýknaður. Var hann sakfelldur í Stím-málinu í héraðsdómi en aðalmeðferð í markaðsmisnotkunarmálinu er ekki enn hafin. Magnús Arnar var áður ákærður og dæmdur í 2 ára fangelsi í Hæstarétti í svokölluðu BK-44 máli.
Þeir Lárus og Magnús Arnar eru ákærðir fyrir umboðssvik með því að hafa 8. eða 9. júlí 2008 misnotað aðstöðu sína og stefnt fjármunum bankans í verulega hættu með því að fara út fyrir heimildir sínar til lánveitinga er þeir samþykktu í sameiningu að veita einkahlutafélaginu FS38, eignalausu félagi með takmarkaða ábyrgð, 6 milljarða króna lán án fullnægjandi trygginga fyrir endurgreiðslu.
Lánið var veitt til að fjármagna að fullu kaup FS38 ehf. á 25,7% hlut Fons hf. í Aurum Holdings Limited en hlutabréf þess félags voru ekki skráð í kauphöll. Voru 2,8 milljarðar af láninu notaðir í uppgreiðslu láns Fons við Glitni, tveir milljarðar fóru á reikning Fons og 1,2 milljarðar á handveðsettan reikning Fons til að bæta tryggingarstöðu félagsins við Glitni.
Í ákærunni segir að Jón Ásgeir hafi ráðið yfir 40% af hlutafé bankans í gegnum félög sem hann, fjölskylda hans og viðskiptafélagar áttu meirihluta í og stjórnuðu. Þá segir: „Honum gat ekki dulist að með lánveitingunni væru ákærðu Lárus og Magnús Arnar að misnota aðstöðu sína og valda bankanum verulegri fjártjónshættu en að undirlagi ákærða Jóns Ásgeirs heimilaði Fons hf. ráðstöfun á 1.000.000.000 króna af lánsfjárhæðinni inn á reikning ákærða Jóns Ásgeirs sem hann tók við og nýtti í eigin þágu, meðal annars til að greiða 704.916.008 króna ótryggða yfirdráttarskuld sína hjá Glitni banka hf. Fékk ákærði Jón Ásgeir þannig hlut í ávinningi af brotinu og naut hagnaðarins.
Árið 2009 færðu lánardrottnar Aurum hlutfé félagsins niður í 1 sterlingspund og við það varð veð Glitnis að engu. FS var síðar sett í gjaldþrotaskipti og fundust engar eignir upp í kröfur. Það var svo í lok árs 2012 sem ákæra í málinu var gefin út af embætti sérstaks saksóknara, sem síðar varð að héraðssaksóknara. Aðalmeðferð fór fram í apríl og maí árið 2014 og var að lokum sýknað í málinu. Einn dómari skilaði þó sératkvæði og vildi sakfella þrjá af fjórum í málinu.
Stuttu síðar kom í ljós að sérfróður meðdómsmaður í málinu, Sverrir Ólafsson, var bróðir Ólafs Ólafssonar sem hafði áður verið dæmdur í Al-thani máli Kaupþings. Sagðist saksóknari ekki hafa vitað af tengslunum og endaði það með að ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar og fór fram á að dómurinn yrði ógildur og málið sent á ný í héraðsdóm. Hæstiréttur féllst á það í apríl 2015.
Við tóku deilur um dómara málsins í héraði, en Guðjón St. Marteinsson, sem hafði verið dómsformaður í fyrri atrennunni, átti að sitja áfram. Saksóknari taldi aftur á móti að hann væri ekki hæfur til að dæma áfram í málinu. Guðjón kvað upp úrskurð um að hann væri hæfur, en Hæstiréttur dæmdi svo að skipa skyldi nýjan dómsformann.
Þá tók Símon Sigvaldason sæti meðdómarans Arngríms Ísberg, sem áður hafði skilað sératkvæði í málinu. Vildu verjendur ekki sætta sig við setu Símonar, en hann hefur áður dæmt menn seka í hrunmálum. Hæstiréttur vísaði þessari kröfu aftur á móti frá. Þá sögðu verjendur að sérfróðan meðdómara sem fenginn hafði verið til að dæma í málinu, Hrefnu Sigríði Briem, skorti sérfræðiþekkingu til að dæma í málinu sem sérfróður meðdómari. Þessu hafnaði dómsformaður og er nú komið að aðalmeðferð málsins.
Samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að málið taki 7-8 daga í héraði, en það þýðir að aðalmeðferð ljúki í lok næstu viku.