Hverjum og einum er heimilt að leigja út tvo einkabíla svo lengi sem það er gert í gegnum sérstakar einkabílaleigur á netinu sem eru með starfsleyfi frá Samgöngustofu.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að þrjár slíkar bílaleigur eru nú starfræktar á landinu.
Bílana má þó aðeins leigja út að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, eins og tryggingum og að bíllinn hafi farið í gegnum skoðun.