„Mér finnst þessi ákvörðun mjög slæm á alla kanta. Það er augljóst að þetta gengur þvert á allt það sem er verið að gera í samfélaginu og fólki er misboðið,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar stéttarfélags og annar varaforseti ASÍ, í samtali við mbl.is.
Þingfararkaup hefur verið hækkað um 338 þúsund krónur á mánuði og verður rúmar 1.100 þúsund krónur. Laun forseta verða 2.985 þúsund krónur á mánuði. Laun ráðherra verða 1.826 þúsund og laun forsætisráðherra 2.022 þúsund kr. Laun þeirra sem þessum embættum gegna hækka um nálægt hálfri milljón á mánuði. Hlutfallslega hækka laun forseta minnst, eða um 20%. Laun ráðherra hækka um rúm 35% en þingfararkaupið hækkar mest, um 44%.
„Fyrst var kjararáði falið það verkefni að hækka alla embættismenn og síðan vísa menn í embættismennina; að það þurfi að hækka þingmenn í samræmi við það. Þetta er algjörlega óásættanlegt,“ bætir Sigurður við.
Hann telur að með þessu sé verið að gefa tóninn um það sem menn telji að sé til skiptanna í samfélaginu. „Það er bara eðlilegt að fólk upplifi það með þeim hætti. En það hjálpar okkur hins vegar ekkert. Svona hækkanir eiga ekki að eiga sér stað.“
Sigurður vill að Alþingi taki launahækkanirnar til baka. „Þessi ákvörðun er í boði Alþingis. Kjararáð vinnur samkvæmt þeim fyrirmælum sem Alþingi gefur á hverjum tíma og það er ekki á borði neins annars en Alþingis að taka þetta til baka. Alþingismenn hafa mikið talað fyrir stöðugleika í samfélaginu og segja að það skipti miklu máli að hann sé skapaður á vinnumarkaði og það sé lagður grunnur að því. Það er þá jafngott að þeir stigi fyrstu skrefin að þeim stöðugleika sjálfir.“