Háskóli Íslands og Landspítalinn hafa skipað nefnd óháðra sérfræðinga til að rannsaka aðkomu stofnananna og starfsmanna þeirra að plastbarkamálinu svokallaða. Nefndarmennirnir starfa allir utan háskólans og spítalans, en þeir eru dr. Páll Hreinsson, dómari við EFTA-dómstólinn, María Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í geðlækningum við réttargeðdeildina í Dikemark í Noregi, og Georg Bjarnason, krabbameinslæknir og vísindamaður við Sunnybrook-stofnunina í Toronto í Kanada. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskóla Íslands.
Vísað er til þess að nefndarmennirnir hafi víðtæka reynslu og þekkingu af vísindastarfi á sviði læknisfræði, lögfræði og siðfræði, auk reynslu af störfum í sérstökum rannsóknarnefndum.
Rifjað er upp að í ágúst hafi tveimur viðamiklum sjálfstæðum rannsóknum á plastbarkamálinu af hálfu Karolinsku stofnunarinnar og Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi lokið. Rannsóknirnar lutu að klínískum og vísindalegum ferlum þeirra stofnana sem áttu aðkomu að málinu í Svíþjóð.
Í framhaldinu ákváðu Háskóli Íslands og Landspítali, á grundvelli stjórnunarheimilda sinna, að skipa sjálfstæða og óháða rannsóknarnefnd til að fara yfir málið. Rannsóknarnefndinni er ætlað að veita rökstutt álit á því hvort ákvarðanir íslenskra heilbrigðisstarfsmanna á LSH í tengslum við málið hafi verið í samræmi við lög, reglur og verkferla. Einnig er hlutverk nefndarinnar að rannsaka lagalegan og siðferðilegan grundvöll fyrir þátttöku íslenskra lækna í ritun og birtingu greinar um efnið í vísindatímaritinu Lancet og fyrir málþingi sem var haldið í HÍ sumarið 2012.
Hlutverk nefndarinnar er að rýna niðurstöður sænsku rannsóknanna, ræða við skýrsluhöfunda og skoða sérstaklega aðkomu íslenskra stofnana og/eða starfsmanna þeirra að málinu. Nefndin hefur þegar hafið störf og er áætlað að niðurstöður hennar liggi fyrir á vormánuðum.
Nánari upplýsingar um nefndarmennina þrjá: