Beiðni landeigenda um að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins, vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um að sólarkísilverksmiðja á Grundartanga þarf ekki að fara umhverfismat, var hafnað. Þetta kom fram í úrskurði sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
„Við munum fara yfir úrskurðinn og meta hvort ástæða er til að bera þetta undir Hæstarétt,“ segir Sigríður Dís Guðjónsdóttir lögmaður landeigenda. Frestur til þess eru tvær vikur.
Dómsmál íbúa Kjósarhrepps og Hvalfjarðar gegn Silicor Materials Inc., Skipulagsstofnun og umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, um að hnekkja úrskurði Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð sólarkísilverksmiðja þarf ekki umhverfismat var þingfest 17. desember 2015. Efnismeðferð hófst 6. október síðastliðinn. Stefnendur í málinu eru fimmtíu talsins og er Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, þeirra á meðal.
Silicor áætlar að framleiða 16 þúsund tonn af sólarkísil í 92 þúsund fermetra verksmiðju. Í ágúst samþykkti Etirlitsstofnun EFTA (ESA) samþykkt byggðaaðstoð til Silicor Materials vegna byggingar á sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. Hún verður í formi skattahagræðis og ívilnandi reglna um leigu og fyrningu.
Frétt mbl.is: ESA samþykkir byggðaaðstoð til Silicor
Frétt mbl.is: 52 stefna í máli gegn Silicor Materials