Bergsson mathús fer ekki neitt

Bergsson mathús í Templarasundi.
Bergsson mathús í Templarasundi.

Veitingastaðurinn Bergsson mathús verður áfram starfræktur í Templarasundi 3 eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að Þórsgarði ehf., eiganda fasteignarinnar, hefði ekki verið heimilt að segja upp leigusamningi.

Forsaga málsins er sú að Þórsgarður sagði einhliða upp leigusamningi við Bergsson mathús snemma síðasta vor í kjölfar deilna. Við þessa niðurstöðu sætti Bergsson sig ekki. Í framhaldinu höfðaði Þórsgarður mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem þess var krafist að Bergsson viki úr húsnæðinu.

Þórir Bergsson, eigandi Bergsson mathúss, segist að sjálfsögðu ánægður með niðurstöðuna og á ekki von á því að málinu verði áfrýjað. „Það var ekki fallist á neitt þeirra atriða sem þeir lögðu upp með,“ segir Þórir í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert