Hópur fólks kom saman fyrir utan sendráð Bandaríkjanna við Laufásveg nú síðdegis, til að sýna samstöðu með mannréttindum, jafnrétti og virðingu í kjölfar forsetakosninganna vestanhafs.
Fólk var hvatt til að mæta með rós og með öryggisnælu í barminum, en hún er sögð nýtt alþjóðlegt tákn öryggis.
Yfirlýstir stuðningsaðilar viðburðarins voru Akkeri, Samtökin '78, Femínistafélag HÍ, No Borders Iceland, Trans Ísland, Kynsegin Ísland og Tabú.