„Þetta er mikið fagnaðarefni. Númer eitt, tvö og þrjú erum við ánægð með að þessum kafla sé lokið. Við höldum ótrauð áfram og siglum í vor um leið og við getum,“ segir Ingvar Þórir Geirsson eigandi fyrirtækisins Ice Lagoon ehf. sem er leyfilegt á nýjan leik að gera út báta á Jökulsárlóni samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar.
Fyrirtækinu er leyfilegt að gera út báta með ferðamenn á Jökulsárlóni frá landi jarðarinnar Fells samkvæmt dómi Hæstiréttar. Hæstiréttur sneri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem fyrirtækinu var bannað að gera út báta með ferðamenn á staðnum.
Frétt mbl.is: Dómi um Jökulsárlón snúið við
Spurður hvort farið verði fram á bætur vegna tjónsins sem það varð fyrir, segir Ingvar að ekki hafi verið tekin ákvörðun um það. Dómurinn er nýfallinn og ekki hafi gefist tími til að fara yfir þau mál.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar lagði dagsektir á fyrirtækið árið 2014. Þurfti það að greiða 250 þúsund krónur fyrir hvern dag sem leið án þess að það fjarlæði alla lausamuni af svæðinu.
Frétt mbl.is: Gert að fjarlægja eignir frá lóninu