Fyrirtækið Brúnegg brást seint og illa við athugasemdum Matvælastofnunar um að bæta aðbúnað hænsna fyrirtækisins. Í mörg ár gerði Matvælastofnun sömu athugasemdir við aðbúnað dýranna, meðal annars að of margar hænur væru í búrum. Þetta er meðal annars það sem kom fram í Kastljósþætti kvöldsins um eggjaframleiðslu fyrirtækisins Brúneggs.
Frétt mbl.is: Telur Brúnegg hafa blekkt neytendur
Ef of þétt er um varphænur í búrum verða þær stressaðar. Þær óttast um að fá ekki næga fæðu, meiri hætta er á að sjúkdómar breiðist út og fleiri ókostir fylgjast, að sögn dýralæknis sem rætt var við í þættinum.
Jón Gíslason, forstjóri MAST, telur að fuglabúið hafi í raun aldrei uppfyllt þau skilyrði að geta merkt framleiðslu sína sem vistvæna líkt og það hafi gert. Á búunum hafi verið of margar hænur á fermetra til að uppfylla skilyrði reglugerðar um vistvæna framleiðslu. Jón vísar í skýrslur stofnunarinnar um fyrirtækið sem ná nokkur ár aftur í tímann.
Hér má sjá Kastljósþátt RÚV í heild sinni.