Golfurum finnst veturinn oft vera langur og er frekar illa við snjó. Þetta á að minnsta kosti við um golfara á Skagaströnd þar sem oft er snjóþungt á vetrum.
Það verður því að teljast til tíðinda þegar golf er spilað á auðum Háagerðisvelli, með hvanngrænum flötum, 3. desember.
Fram að þessu hefur frekar verið von á að sjá fólk á gönguskíðum á vellinum í jólamánuðinum en að sjá kylfinga eltast þar við kúlurnar sínar, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.