Hundrað milljónum króna verður veitt aukalega til Landspítalans, samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga sem lagt var fyrir Alþingi í dag.
Í frumvarpinu segir að fjárveitingunni sé ætlað að koma til móts við aukið álag, meðal annars vegna fjölda hælisleitenda og erlendra ferðamanna.
„Þannig hefur fjöldi hælisleitenda slegið öll fyrri met á yfirstandandi ári og kostnaður spítalans vegna þeirra einstaklinga sem leitað hafa til hans hefur aukist að sama skapi,“ segir í frumvarpinu.
Áður hefur mbl.is greint frá því að Landspítalinn fær 3,9 milljörðum króna meira í framlög á næsta ári, miðað við yfirstandandi ár, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fyrir Alþingi fyrr í mánuðinum.
Frétt mbl.is: Landspítalinn fær tæplega 4 milljörðum meira
Samkvæmt fjárlögum og fjáraukalögum verða heildarframlög til spítalans því tæplega 59,4 milljarðar króna samkvæmt frumvarpinu.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, hefur sagt í samtali við mbl.is að fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár sé gífurleg vonbrigði og að í rauninni felist í því algjörar hamfarir.
Sagði hann að um þrír milljarðar af þessum tæplega fjórum fari í launahækkanir og verðlagsuppbætur.
„Það eru samt að koma 800 milljónir inn en á móti kemur að sú þörf sem við höfum rætt um er allt að 12 milljarðar króna, ef fjármagna ætti rekstur, innviði, menntun og mannauð og vísindi á fullnægjandi hátt.“