Enn eitt umferðarmetið var slegið undir Hvalfirðinum í nóvember sl. er um 160 þúsund ökutæki fóru í gegnum göngin, en það er 7,5% aukning frá sama tíma í fyrra.
Er þetta einnig mesta umferð í göngunum í nóvember frá því að þau voru opnuð.
„Og það stefnir í mjög mikla umferð í desember – við erum strax farnir að sjá það,“ segir framkvæmdastjóri Spalar í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.