Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum lagði fram tilboð að skammtímasamningi á stuttum fundi hjá ríkissáttasemjara og Sambandi íslenskra sveitarfélaga í gær í kjaradeilu félagsins. Að sögn Sigrúnar Grendal, formanns Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, var óskað eftir því að þessu tilboði yrði svarað fyrir hádegi í dag.
Samningar við félagið hafa verið lausir frá 1. nóvember 2015. Árangurslaus fundur var í kjaradeilunni á mánudaginn síðastliðinn en fyrir helgina eða 15. desember lagið Samband íslenskra sveitarfélaga fram nýtt tilboð.
Að sögn Sigrúnar hafi það tilboð í raun ekki verið nýtt. Hún segir að í kjaradeilunni hafi sama tilboðið verið lagt fram fjórum sinnum. Hún segir að eina breytingin á samningnum sem var lagður fram síðast varði stöðu kennara innan félagsins. Að öðru leyti sé samningur við stjórnendur og millistjórnendur í tónlistarskólum óbreyttur. „Við erum bjartsýn að eðlisfari og litum svo á að þetta gagntilboð okkar sé til marks um samningsvilja,” segir Sigrún.
„Verkföll eru liðin tíð fyrir litla hópa og það sást í verkfalli tónlistarkennara árið 2014. Það er ekki lengur inn í myndinni,“ segir hún, spurð hvort tónlistarkennarar íhugi verkfall.
Frétt mbl.is: Árangurslaus fundur í kjaradeilu