Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í kvöld eftir að tvær neyðarsólir sáust á lofti nærri Höfnum á Suðurnesjum, en lögreglu barst tilkynning um sólirnar á níunda tímanum.
Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að sá sem tilkynnti var staddur á Grænásbraut í Reykjanesbæ. Sagðist hann sjá sólirnar á suðvesturhimninum, séð frá sér, en taldi þær líklega nær sér en Höfnum.
Ákveðið var þá að kalla út TF-LÍF og björgunarsveitir til að kanna málið betur og sannreyna hvort um raunverulegt neyðarkall væri að ræða, að því er segir í tilkynningu Gæslunnar.
„Þyrlan fór í loftið klukkan hálftíu. Eftir nokkra leit á svæðinu frá Garðskaga að Reykjanestá þótti ljóst að blysunum hefði ekki verið skotið upp út af Höfnum heldur benti allt til að þeim hefði verið skotið af landi. TF-LÍF lenti aftur í Reykjavík klukkustund síðar.
Landhelgisgæslan og aðrir viðbragðsaðilar taka allar tilkynningar um neyðarblys á lofti mjög alvarlega enda eru þau eitt mikilvægasta úrræði sjófarenda og annarra til að kalla eftir aðstoð í neyð.
Af þessu tilefni skal enn brýnt fyrir fólki að skjóta ekki upp flugeldum, nú þegar jólahátíðinni er lokið. Öll notkun flugelda er bönnuð eftir 6. janúar, meðal annars til að koma í veg fyrir atvik eins og í kvöld.“