Runnu á lyktina

Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði kannabisræktun á sumarhúsasvæði í Grímsnesi í gær. Upp komst um ræktunina þegar lögreglan var við hefðbundið eftirlit á svæðinu í fyrrinótt. Miklar froststillur voru og rann lögreglan einfaldlega á lyktina af kannabisplöntunum.

Að sögn varðstjóra fór lögreglan aftur á svæðið í gær og beið átekta eftir eiganda plantnanna og þegar hann kom á svæðið síðdegis í gær til að huga að framleiðslunni var hann handtekinn og plönturnar, um tuttugu stykki, haldlagðar. Maðurinn játaði að standa að ræktuninni og telst málið upplýst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert