Viðar Guðjónsson -
Tveir menn af grænlenska togaranum Polar Nanoq sem úrskurðaðir hafa verið í tveggja vikna gæsluvarðhald, neita báðir að eiga þátt í hvarfi Birnu Brjánsdóttur sem leitað hefur verið síðan aðfaranótt laugardags sl. Þetta staðfesti Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is.
Hann segir sérstaka áherslu lagða á rannsókn á rauðri Kia Rio-bifreið sem hald var lagt á fyrir utan Hlíðasmára í Kópavogi. Tæknideild lögreglunnar er enn með bílinn til skoðunar en rannsókn er ekki lokið.
Mennirnir eru báðir grunaðir um refsiverða háttsemi í tengslum við hvarf Birnu. Lögreglan fór fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir báðum mönnunum og hefur ákveðið að kæra úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar.
Ekki er búið að ákveða hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þriðja manninum sem var handtekinn um borð í togaranum síðdegis í gær.
Uppfært 14.22: Unnsteinn Örn Elvarsson, lögmaður annars skipverjans, segir aðspurður að hann vilji að umbjóðandi sinn verði úrskurðaður í styttra gæsluvarðhald en héraðsdómur ákvað. Hann hafi þó ekki ákveðið endanlega hvernig málinu verði stillt upp af sinni hálfu.