Ekki verður farið fram á gæsluvarðhald yfir þriðja skipverjanum af grænlenska togaranum Polar Nanoq, sem var handtekinn í gærkvöldi um borð í skipinu. Unnið er nú í því að sleppa honum úr haldi. Þetta segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
„Við teljum okkur vera búin að fá upplýsingar um að hann tengist þessu ekki og hafi ekki upplýsingar um hvarf Birnu,“ segir Grímur í samtali við mbl.is.
Maðurinn var handtekinn um kl. 19.45 í gær um borð í togaranum. Fyrr sama dag höfðu lögreglumenn í sérsveit ríkislögreglustjóra komið um borð og tekið yfir stjórn skipsins, og handtekið tvo aðra skipverja. Skipið var þá statt um 90 mílur suðvestur af Íslandi, á leið til hafnar í Hafnarfirði.
Hinir skipverjarnir tveir voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald fyrr í dag en þeir eru grunaðir um refsiverða háttsemi í tengslum við hvarf Birnu. Þeir neita báðir
Tæknideild lögreglunnar gerði ítarlega rannsókn um borð í skipinu í nótt og í dag. Ýmsar vísbendingar hafa fundist um borð í skipinu sem nýtast í rannsókninni um hvarf Birnu. Þó hafa ekki komið fram frekari upplýsingar um hvar hana er að finna.
Fjórði maðurinn sem handtekinn var í dag tengist hvarfinu á Birnu ekki, heldur tengist hann fíkniefnamáli sem einnig er til rannsóknar vegna fíkniefnafundarins í skipinu.
Fréttin hefur verið uppfærð.