Úrskurður héraðsdóms um að mennirnir tveir, sem handteknir voru í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur, sæti tveggja vikna gæsluvarðhaldi er byggður á grunsemdum um manndráp. Þetta staðfesti Jón H.B Snorrason, saksóknari hjá lögreglunni í samtali við mbl.is.
Frétt mbl.is: Rannsaka hvort Birnu hafi verið ráðinn bani
Spurður til hvaða greinar hefði verið vísað þegar óskað var eftir gæsluvarðhaldi svaraði Jón:
„Það er 211. grein almennra hegningarlaga enda erum við að rannsaka grunsemdir um það.“
Í 211. grein almennra hegningarlaga í 23. kafla um manndráp og líkamsmeiðingar segir að „hver, sem sviptir annan mann lífi, skal sæta fangelsi, ekki skemur en 5 ár, eða ævilangt.“
Að sögn Jóns hefur lögregla ekki kært úrskurð héraðsdóms um gæsluvarðhald fjórða mannsins sem rennur út á mánudaginn.