Jóna Sólveig Elínardóttir, þingmaður Viðreisnar, hefur verið kjörin formaður utanríkismálanefndar Alþingis, á fyrsta fundi nefndarinnar sem lauk á ellefta tímanum.
Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, var þá kjörinn 1. varaformaður nefndarinnar og Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í embætti 2. varaformanns.
Fram kemur á vef Alþingis að nefndin fjallar um samskipti við erlend ríki og alþjóðastofnanir, varnar- og öryggismál, útflutningsverslun, málefni Evrópska efnahagssvæðisins og þróunarmál, svo og utanríkis- og alþjóðamál almennt.
„Samkvæmt 24. gr. þingskapa skal utanríkismálanefnd vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera undir hana slík mál, jafnt á þingtíma sem í þinghléum.“