Enginn stjórnarandstöðuflokkur fer með formennsku í átta fastanefndum Alþingis. Þetta er ljóst eftir formannskjör innan nefndanna í morgun og gærmorgun. Þvert á móti eru sex formenn úr röðum Sjálfstæðisflokks, einn úr röðum Viðreisnar og einn frá Bjartri framtíð.
Þegar litið er nánar yfir formennina má sjá að þeir skiptast jafnt eftir kyni. Elstur þeirra er Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokks fyrir Suðurkjördæmi, fæddur árið 1954.
Yngsti formaðurinn er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, flokkssystir Páls úr Reykjavíkurkjördæmi norður, fædd árið 1990.
Reykjavíkurkjördæmi suður og Suðurkjördæmi eiga tvo formenn hvort um sig. Hin fjögur kjördæmin eiga svo einn formann hvert.
Í lögum um þingsköp segir að tillaga um skipun nefndanna skuli byggjast á hlutfallslegum þingstyrk flokkanna.
Nánar tiltekið er í 14. grein laganna kveðið á um kosningu fastanefnda, þar sem segir að formenn þingflokka skuli á þingsetningarfundi leggja fram tillögu um skipun nefndanna.
„Tillagan skal byggjast á hlutfallslegum þingstyrk flokkanna og miðast við heildarfjölda nefndarsæta, annars vegar í fastanefndum og hins vegar í alþjóðanefndum,“ segir í ákvæðinu, en stjórnarflokkarnir hafa á að skipa 32 þingmönnum, aðeins einum fleiri en stjórnarandstaðan.
Eins og áður hefur verið greint frá, náðist þó ekki samkomulag á milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar um formennsku í nefndunum átta. Var því kosið um embætti formanna og tveggja varaformanna, á fundi hverrar nefndar.
„Stjórnarflokkarnir teygðu sig mjög langt til stjórnarandstöðunnar um helgina, en þeim líkaði ekki hvernig við sáum þetta fyrir okkur, svo það varð ekki úr þetta heildarsamkomulag,“ sagði Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is í gær.
Bætti hann við að rétt væri að halda því til haga, að samkomulag hefði náðst um skipan formanna í átta alþjóðanefndum þingsins, þar sem hlutur stjórnarandstöðunnar yrði meiri en tíðkast hefði til þessa.
Frétt mbl.is: Gætu haft formennsku í öllum fastanefndum
Stjórnarandstaðan hafði tvo formenn af átta í nefndunum á síðasta kjörtímabili. Þótti það í samræmi við þáverandi þingstyrk, en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafði 38 þingmenn í sínum röðum, gegn 25 þingmönnum stjórnarandstöðu.
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, fór þá fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar, leiddi velferðarnefnd.
Núverandi stjórnarflokkar höfðu fyrr á þessu ári lýst því sjónarmiði, að þeir teldu eðlilegt að þeir fengju formennsku í sex þingnefndum, Sjálfstæðisflokkur í fimm þeirra, Viðreisn í einni og loks stjórnarandstaðan í tveimur.
Það fannst stjórnarandstöðuflokkunum vera rýrt í roðinu og klént, eins og Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Pírata, orðaði það þá.
Frétt mbl.is: Engin sátt um formennsku í þingnefndum
Birgitta hefur sömuleiðis gagnrýnt sitjandi ríkisstjórn fyrir að ljá ekki stjórnarandstöðunni formennsku í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Í pontu Alþingis í morgun sagði hún það ekki að ástæðulausu að nefndin hefði verið sett á laggirnar. Það hefði verið ákveðið í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 og skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
„Þá var það lagt til að formennska þessarar nefndar yrði hjá stjórnarandstöðu, þar sem í því fælist meðal annars möguleiki fyrir Alþingi til að tryggja sjálfstæði sitt gagnvart framkvæmdavaldinu,“ sagði Birgitta og bætti við að stórfurðulegum vinnubrögðum Sjálfstæðisflokksins væri um að kenna, að svo háttaði ekki nú.
Frétt mbl.is: „Stórfurðuleg vinnubrögð“
Ekki er þó loku fyrir það skotið að formennska í fastanefndunum skipti um hendur að svo komnu. Segir í þingskapalögum að nefnd geti hvenær sem er kosið að nýju formann eða varaformenn, ef fyrir liggur beiðni meirihluta nefndarmanna. Fellur þá fyrri kosning úr gildi.