Milli 10 og 12 þúsund manns tóku þátt í göngu til minningar um Birnu Brjánsdóttur í gærdag. Þetta segir Hannes Þór Guðmundsson, varðstjóri umferðardeildar lögreglunnar. Gangan fór mjög vel fram.
Hannes segist ekki vita til þess að jafn fjölmenn ganga hafi verið síðustu ár í miðborginni fyrir utan Gleðigönguna.
Frétt mbl.is: Mínútuþögn á Arnarhóli