Allt að 51% munur er á kostnaði foreldra við hádegisverð og síðdegisvistun grunnskólabarna meðal stærstu sveitarfélaga landsins samkvæmt nýrri samantekt verðlagseftirlits ASÍ. Gjald fyrir hádegisverð, 3 tíma síðdegisvistun og hressingu fyrir barn í neðri bekkjum grunnskólans er hæst í Garðabæ 36.484 kr. á mánuði en lægst í sveitarfélaginu Skagafirði 24.234 kr.
Heildarkostnaður foreldra vegna þessarar þjónustu hefur hækkað í öllum 15 sveitarfélögunum sem til skoðunar eru undanfarið ár. Mesta hækkunin milli ára er í Reykjavík, þar sem heildarkostnaður vegna þessarar þjónustu hækkar úr 23.530 kr. í 26.100 kr. á mánuði eða um 11% sem er að mestu tilkomið vegna hækkunar á hádegisverði. Minnsta hækkunin milli ára er hjá Ísafjarðarbæ þar sem heildarkostnaður foreldra fer úr 31.267 kr. á mánuði í 31.603 kr. sem er 1% hækkun.
Samantektin nær til 15 fjölmennustu sveitarfélaga landsins. Uppbygging gjaldskráa sveitarfélaganna er mjög mismunandi, en í þessum samanburði er miðað við þriggja tíma dagleg vistun eftir skóla ásamt síðdegishressingu og hádegismat í 21 dag á mánuði. Ekki er tekið tillit til seðilgjalda eða annarra innheimtugjalda sem kunna að leggjast ofan á gjöldin og eru í sumum tilvikum innheimt í tvennu lagi. Í sumum sveitarfélögum er einnig í boði ávaxtastund og mjólkuráskrift á skólatíma sem er ekki er hluti af samanburðinum, segir í fréttatilkynningu frá ASÍ.
Allt að 41% verðmunur á hádegisverði
Ef eingöngu er skoðuð gjaldskrá fyrir hádegisverð sem í boði er fyrir grunnskólabörn á öllum aldri má sjá að allt að 41% verðmunur milli sveitarfélaga. Hæsta verðið er á Ísafirði þar sem máltíðin kostar 492 kr. eða 10.332 krónur á mánuði ef gert er ráð fyrir 21. vikum degi í mánuði. Lægsta verðið er hins vegar í sveitarfélaginu Árborg, 349 kr. máltíðin eða 7.329 krónur á mánuði.
Hlutfallslega hækkar verð á hádegismat grunnskólabarna mest í Reykjavík milli ára eða um 30%, máltíðin fór úr 338 kr. í 441 kr. Í Reykjanesbæ nemur hækkunin 10% en þar hækkar máltíðin úr 350 kr. í 385 kr. Í Hafnarfirði hækkar máltíðin um ríflega 8% milli ára, í sveitarfélaginu Skagafirði um 6% og í Kópavogi, Mosfellsbæ og á Akranesi um 4%. Akureyri og Vestmannaeyjar eru einu sveitarfélögin þar sem gjald fyrir hádegisverð grunnskólabarna er óbreytt milli ára.