Lexus dreginn út í áskriftarleik

Haraldur Johannessen ritstjóri og Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, sáu um …
Haraldur Johannessen ritstjóri og Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, sáu um útdráttinn. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Dregið var í áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins í dag. Vinningshafinn var Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri og hlaut hann í vinning glæsibifreið af gerðinni Lexus NX 300h F Sport. Verðmæti vinningsins er nálægt tíu milljónum króna. Bíllinn verður afhendur hinum nýja eiganda á morgun.

Áskrif­enda­happ­drættið var sam­starfs­verk­efni Morg­un­blaðsins og Lexus. Það voru þeir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi, og Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, sem drógu út vinningshafann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert