Erlendum gesti á hóteli í Vesturbæ Reykjavíkur varð það til lífs að tveir læknar voru staddir þar þegar gesturinn fékk hjartastopp í miðjum dansi á hótelinu um tíu í gærkvöldi. Læknarnir, sem einnig voru að skemmta sér á hótelinu, brugðust skjótt við og hófu strax endurlífgun.
Að sögn lögreglu var hjartastuðtæki á hótelinu sem notast var við áður en sjúkraflutningafólk var komið á hótelið. Endurlífgun gekk vel og var maðurinn kominn með meðvitund áður en hann var fluttur á Landspítala við Hringbraut, samkvæmt dagbók lögreglu.