Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lagði fram bókun við upphaf bæjarstjórnarfundar í gær þar sem sett er fram áskorun um að skoðaðir verði kostir þess að innanlandsflugið verði flutt til Keflavíkurflugvallar. Er lýst furðu sinni á því að kostir þess hafi ekki verið kannaðir á sama tíma og hafin sé vinna við að kanna kosti þess að flytja innanlandsflugið í Hvassahraun sem sé í 20 mínútna akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli.
„Það er ljóst að verði af slíkri framkvæmd mun hún kosta tugi milljarða. Það getur varla talist réttlætanlegt þegar hægt væri að koma upp aðstöðu fyrir innanlandsflug [á Keflavíkurflugvelli] fyrir brot af þessum kostnaði. Svokölluð Rögnunefnd sem fékk það verkefni að skoða aðra kosti fyrir innanlandsflug en í Reykjavík, útilokaði einhverra hluta vegna Keflavíkurflugvöll sem valkost. Ástæður þess liggja ekki fyrir og slíkt getur varla talist eðlilegt þegar um svo mikla fjármuni er að ræða,“ segir ennfremur í bókuninni.
Kostir þess að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur séu hins vegar augljósir út frá fjárhagslegum sjónarmiðum. „Á það hefur verið bent að dreifa þurfi ferðamönnum um landið vegna átroðnings á ákveðnum stöðum. Með tengingu innanlandsflugs og millilandaflugs verður slíkt mögulegt í auknum mæli. Á Suðurnesjum er til staðar sjúkrahús sem gæti sinnt ákveðnum hluta sjúkraflugs með litlum breytingum og því ætti öryggisatriðum að vera fullnægt.“
Skorar bæjarstjórnin á hlutaðeigandi að skoðaðir verði kostir þess að innanlandsflugið verði flutt til Keflavíkurflugvallar samhliða athugun á öðrum kostum.