Innanríkisráðuneytið auglýsti í dag laus til umsóknar embætti 15 dómara við Landsrétt, en Landsréttur á að taka til starfa 10. janúar á næsta ári.
Umsóknarfrestur um embættin er til 28. febrúar næstkomandi og er dómsmálaráðherra gert að leggja tillögur sínar um hverjir verði skipaðir í embættin fyrir Alþingi til samþykktar.
Landsdómararnir 15 munu svo taka við embættinu 1. janúar á næsta ári.