Bráðabirgðarniðurstaða úr krufningu á líki bandarísks karlmanns á sjötugsaldri, sem lést við yfirborðsköfun í Silfru á sunnudag, liggur fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Segir þar að maðurinn hafi drukknað.
Maðurinn hafði verið við snorkl í gjánni ásamt hópi erlendra ferðamanna, undir leiðsögn leiðbeinanda
Fyrri fréttir mbl.is:
Ferðamaður lést við Silfru
Ekki nauðsynlegt að vera syndur
„Ég horfði á manneskju deyja“