Lögreglan á Suðurlandi telur að sömu aðilar hafi verið á ferðinni í þremur innbrotum í íbúðarhús á Selfossi í gær og í dag.
Innbrotin eru talin hafa átt sér stað að kvöldlagi og einnig að morgni dags á Engjavegi, við Gesthús og í Ártúnshverfi.
Lögregla vill hvetja fólk til að vera á varðbergi gagnvart hugsanlegum gerendum og tilkynna grunsamlegar mannaferðir til lögreglu. Jafnframt óskar lögregla eftir hvers kyns upplýsingum sem almenningur kann að búa yfir og varpað gætu ljósi á málið.
Hægt er að ná sambandi við lögreglu alla virka daga milli klukkan 8 og 16 í síma 444-2000, í gegnum netfangið sudurland@logreglan.is eða í gegnum Fésbókarsíðu lögreglunnar.