Strætó mun hætta öllum akstri á höfuðborgarsvæðinu þangað til klukkan 12 á hádegi sökum ófærðar. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Strætó.
Athugað verður með stöðu mála á nýjan leik í hádeginu.
Samkvæmt upplýsingum frá Strætó gengu vagnarnir eitthvað í morgun en miklar raskanir voru á ferðum þeirra vegna ófærðar.