Kostnaður ræður vali

Vegagerðin velur leiðina sem fer um Teigsskóg
Vegagerðin velur leiðina sem fer um Teigsskóg mbl.is/Helgi Bjarnason

Vegagerðin telur að leið Þ-H um Gufudalssveit sé besti kosturinn við val á nýrri leið um Gufudalssveit. Sú leið liggur meðal annars um Teigsskóg.

Í matsskýrslu sem Vegagerðin hefur nú lagt fram vegna umhverfismats kemur fram að vegagerðin hafi óhjákvæmilega neikvæð áhrif á umhverfið og er leið Þ-H önnur af tveimur leiðum sem hafa mest áhrif á landslagið.

Þegar Skipulagsstofnun hefur gefið út álit sitt á matsskýrslunni sækir Vegagerðin um framkvæmdaleyfi til Reykhólahrepps. Stefnt hefur verið að því að hefjast handa í ár. Óskaleið Vegagerðarinnar, Þ-H, þverar Þorskafjörð, fer um Teigsskóg og þverar Djúpafjörð og Gufufjörð. Hún styttir Vestfjarðaveg um helming, eða rúma 20 km, á þessum kafla og liggur öll um láglendi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert