Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að vinna í því að klára rannsóknina á máli Birnu Brjánsdóttur. Að sögn Gríms Grímssonar yfirlögregluþjóns eru niðurstöður úr rannsóknum á lífssýnum að berast annað slagið en þær eru ekki allar komnar.
„Við klárum þetta um leið og síðasta niðurstaðan er komin. Þá verður hún sett inn í málið,“ segir Grímur og bætir við að markmiðið sé að klára málið um miðjan mánuðinn.
Þá mun héraðssaksóknari fá málið í sínar hendur og ákveða hvort ákæra verður gefin út á hendur manninum sem er grunaður um að hafa valdið dauða Birnu.
Að sögn Gríms hefur hann ekkert verið yfirheyrður síðan í síðustu viku. „Við munum væntanlega yfirheyra hann áður en yfir lýkur en það liggur ekkert fyrir hvenær það verður gert.“
Héraðsdómur Reykjaness staðfesti fyrir viku síðan áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum. Veitt var heimild fyrir 4 vikna gæsluvarðhaldi til viðbótar en hann er nú vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði.
Sjö vikur eru liðnar síðan maðurinn var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald.