Fjöldi nemenda sem nýtir sér stuðningsúrræði á samræmdum könnunarprófum hefur aukist á síðustu árum samkvæmt fréttatilkynningu frá Menntamálastofnun, en í nýlokinni fyrirlögn voru um 30% nemenda með stuðningsúrræði. Árið 2011 var hlutfallið hins vegar 19,4%.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í samantekt Menntamálastofnunar á samræmdum könnunarprófum sem kynnt var á fundi með allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í morgun. Þar er meðal annars fjallað um breytingar á samræmdum könnunarprófum sem snúa að ritun og ástæður þess að notaðar voru fleiri en ein prófútgáfa.
„Þá er farið yfir það hvernig framkvæmdin gekk fyrir sig, þau úrlausnarefni sem komu upp og hvernig þau voru leyst. Hvað varðar tengsl samræmdra könnunarpróf við innritun í framhaldsskóla er áréttað að framhaldsskólar fá ekki sjálfgefinn aðgang að einkunnum nemenda,“ segir ennfremur.
Tveir framhaldsskólar hafi birt upplýsingar á heimasíðum sínum um að þeir kunni hugsanlega að nýta sér þessi viðbótargögn eingöngu þegar velja þurfi á milli margra nemenda með sömu eða sambærilegar skólaeinkunnir. Skólaeinkunnir grunnskóla muni þó eftir sem áður fyrst og fremst liggja til grundvallar inntöku skólanna.