Mannréttindadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að Hæstiréttur Íslands hafi brotið gegn tjáningarfrelsi Steingríms Sævars Ólafssonar, fyrrverandi ritstjóra Pressunnar. Hæstiréttur úrskurðaði árið 2013 að Steingrímur skyldi greiða manni sem bauð sig fram til stjórnlagaráðs 200 þúsund krónur í miskabætur og 800 þúsund krónur í málskostnað vegna ærumeiðandi ummæla sem birtust í miðlinum. Ummæli voru jafnframt ómerkt.
Dóminn telur Mannréttindadómstóllinn brjóta gegn 10. grein mannréttindasáttmálans.
Ægir Geirdal Gíslason höfðaði mál gegn Steingrími árið 2011 og krafðist þess að sex tilgreind ummæli um meint kynferðisbrot hans gegn tveimur systrum yrðu dæmd dauð og ómerk.
Í dómi sínum féllst Hæstiréttur á að þeir sem gæfu kost á sér til trúnaðarstarfa í þágu almennings yrðu að þola umfjöllun á opinberum vettvangi sem snerti hæfni þeirra og eiginleika og hvort þeir væru traustsins verðir. Það réttlætti hins vegar ekki að Ægi væri borin á brýn sú refsiverða háttsemi sem fram hefði komið hjá netmiðlinum. Hefði Ægir hvorki verið fundinn sekur um þá háttsemi sem hann var sakaður um né sætt rannsókn lögreglu af slíku tilefni.
Ummælin „Systur: Sitjum ekki þegjandi undir því að barnaníðingur bjóði sig fram til stjórnlagaþings“ og „Við gátum ekki setið þegjandi undir því að barnaníðingur byði sig fram til stjórnlagaþings“ og „Maðurinn er stórhættulegur og hann gengur laus“ sem birtust 7. nóvember 2010 í vefmiðlinum Pressan.is og ummælin „Systur láta ekki dóttur Ægis Geirdals sussa á sig – Barnaníð ekki einkamál fjölskyldu hans“ sem birtust 23. febrúar 2011 í sama miðli voru dæmd ómerkt.
Mannréttindadómstóllinn telur rök íslensku dómstólanna vissulega gild, en segir þau þó ekki réttlæta afskiptin af málinu. Hæstiréttur hafi ekki gætt meðalhófs eða tekið nægt tillit til þeirrar meginreglu og skilyrða sem málsóknin byggist á og jafnvægisins sem verði að vera milli réttarins til einkalífs og tjáningarfrelsis.
Segir enn fremur í dóminum að Steingrímur hafi ekki farið fram á miskabætur vegna dóms Hæstaréttar og því verði engar slíkar veittar.