Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um skothvell skammt frá Reynigrund í Kópavogi nú um mitt kvöld.
Lögregla bjóst vopnum og hélt á vettvang, en þar var enginn þegar lögreglu bar að.
Skothylki fannst á vettvangi og var það mat lögreglu var að skotið hefði verið upp í loftið.
Aðgerðum á vettvangi er nú lokið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.