Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag munu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins flytja þrjár tillögur sem snúa að samgöngumannvirkjum og umferðaröryggi.
Í fyrsta lagi flytja þeir tillögu um mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðaveg. Að sögn Halldórs Halldórssonar, oddvita sjálfstæðismanna, gengur tillagan út á það að taka upp viðræður við Vegagerðina um þessi gatnamót. Jafnhliða þyrfti Reykjavíkurborg að hefja vinnu við að taka gatnamótin inn á aðalskipulag en þau voru tekin út af skipulaginu á sínum tíma.
„Tíminn sem fer í að breyta aðalskipulaginu ætti að haldast í hendur við þann tíma sem ríkið hefur til þess að tryggja fjárveitingu til verkefnisins,“ segir Halldór í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. Og bætir við að það sé ríkur vilji bæði af hálfu samgönguráðherra og Vegagerðarinnar að ráðast í þetta verkefni.