Bifreið var ekið utan í vegrið á Elliðaárbrúnni, á milli Breiðholts og Árbæjar. Fyrst var talið að um tveggja bíla árekstur hafi verið að ræða en það reyndist ekki rétt.
Tilkynnt var um slysið klukkan rúmlega átta í kvöld.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var ein manneskja í bílnum. Ekki þurfti að flytja hana á slysadeild.