Verið er að ljúka vopnaleit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem framkvæmd var í kjölfar þess að flugstöðin var rýmd fyrr í dag af öryggisástæðum. Farþegar með flugvél frá Grænlandi fóru ekki í gegnum vopnaleit við komuna til Keflavíkur og blönduðust öðrum farþegum. Fyrir vikið varð að framkvæma vopnaleit á öllum farþegum í flugstöðinni í samræmi við reglur.
Frétt mbl.is: Byrjað að hleypa inn í flugstöðina
Verulegar tafir á brottförum urðu vegna þessa en tvær flugvélar eru farnar í loftið að sögn Guðna Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa ISAVIA, og farþegar eru að fara um borð í aðrar flugvélar. Búist er við að allar þær flugvélar sem seinkaði verði farnar í loftið um klukkan 20:00. Ekki liggur því fyrir hversu mikil seinkunin verður en líklega verður hún all að tveimur og hálfum tíma.